Yfirstjórn umhverfismála
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Forseti vill benda hv. þm. á það að þessi þingskapaumræða hófst vegna 1. dagskrármálsins, yfirstjórn umhverfismála, og væntir forseti þess að síðari hluti þessarar umræðu, sem fjallar um allt annað mál, verði ekki allt of langur. Annars verður forseti að óska eftir því að 1. dagskrármálið verði afgreitt með eðlilegum hætti áður en sú umræða lengist of mikið.