Raforkuver
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Enn eru fjórir hv. þingdeildarmenn á mælendaskrá og að öllum líkindum mun hæstv. iðnrh. bætast á mælendaskrá áður en yfir lýkur. Forseti vill við þetta tækifæri og miðað við gang mála í báðum deildum í dag vekja athygli hv. þingdeildarmanna á því að samkvæmt framgangi mála nú á síðustu klukkustundum eru allar líkur á því að endurskoða verði áætlanir sem gerðar hafa verið um þinglok á laugardag. Ef mál fá ekki skjótari framgang sér forseti ekki að bara af tæknilegum ástæðum verði unnt að ná fram þeim málum sem ætlunin er að afgreiða fyrir þinglok fyrir laugardag. Forseti vill að gefnu tilefni vekja athygli á þessu.