Atvinnuleysistryggingar
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Frsm. 2. minni hl. heilbr.- og trn. (Anna Ólafsdóttir Björnsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. 2. minni hl. hv. heilbr.- og trn. Frv. var lagt fram til að gera nokkrar úrbætur á lögum um atvinnuleysistryggingar, úrbætur sem þörf var á. Þeir sem sömdu frv. urðu sammála um allar greinar þess nema eina, þ.e. 1. gr. sem tekur til 3. gr. núgildandi laga. Í greininni er sá hópur launamanna sem á rétt á atvinnuleysisbótum skilgreindur. Samkvæmt núgildandi lögum eiga þeir launamenn einir rétt á atvinnuleysisbótum sem eru félagar í stéttarfélögum, þó ekki opinberir starfsmenn eins og stendur í texta hlutaðeigandi lagagreinar en fleiri munu þó falla utan þessa hóps.
    Tvö sjónarmið komu upp í nefndinni sem samdi frv. Annars vegar að réttur til atvinnuleysisbóta næði til allra félagsmanna þeirra stéttarfélaga sem ættu aðild að Atvinnuleysistryggingasjóði eða yrðu síðar aðilar að sjóðnum, hins vegar að allir launamenn ættu rétt til greiðslna úr sjóðnum hvort sem þeir væru innan stéttarfélaga eða utan og um þetta snýst ágreiningurinn. Um þetta er fjallað í athugasemdum við frv. en þar segir:
    ,,Nefndin er sammála um að leggja til breytingar á þessari grein, en greinin útilokar nú nokkrar tilgreindar stéttir frá atvinnuleysisbótum. Helmingur nefndarmanna vill að fellt verði niður það skilyrði bótaréttar að hlutaðeigandi umsækjandi sé í stéttarfélagi enda telja þeir að skilyrði um aðild að stéttarfélagi brjóti í bága við félagsmálasáttmála Evrópu sem Ísland er aðili að.`` Þetta er að finna á bls. 2--3 í frv. Um þetta hefur verið fjallað allnokkuð og mun ég bæta örlitlu við.
    Í skýrslu félmrh., svo sem fram hefur komið, um 76. Alþjóðavinnumálaþingið í Genf 1989 kemur fram að Íslendingar hafa fengið alvarlegar ákúrur vegna brota á rétti fólks utan stéttarfélaga til atvinnuleysisbóta. Í fskj. IV við skýrslu félmrh. eru birtar athugasemdir nefndar óháðra sérfræðinga við
framkvæmd Íslands á félagsmálasáttmála Evrópu. Í athugasemdum við 5. gr. segir m.a., eins og fram kom í máli hv. frsm. 1. minni hl. heilbr.- og trn. --- ég leyfi mér að taka hluta af því upp hér aftur í ljósi þess sem hér kemur á eftir:
    ,,Nefndin veitti því enn fremur athygli að samkvæmt lögum nr. 64/1981 eiga aðeins félagar í stéttarfélögum rétt á atvinnuleysisbótum. Með tilliti til þess að það að svipta launamann rétti til fjárhagslegrar verndar ef hann er atvinnulaus er óverjandi ráðstöfun, sem hefur þann tilgang að neyða hann til að ganga í eða vera áfram félagi í stéttarfélagi, hlaut nefndin að komast að þeirri niðurstöðu að ofangreind lög brytu í bága við anda og bókstaf 5. gr. sáttmálans.``
    Þetta er tekið fram á fleiri en einum stað í skýrslu hæstv. félmrh. og hef ég mína tilvitnun frá bls. 44.
    Það er skoðun 2. minni hl. heilbr.- og trn. að ekki sé verjandi að sniðganga það álit sem hér kemur fram hvað svo sem vangaveltum um álit embættismannanefndarinnar líður.

    Í umfjöllun um frv. í heilbr.- og trn. Nd. kom fram að meiri hluti nefndarmanna vildi framfylgja þessum ákvæðum félagsmálasáttmála Evrópu og þannig var málið raunar afgreitt úr nefndinni. Ljóst var að brtt. yrðu lagðar fram við frv. sem tryggðu öllum launamönnum rétt til atvinnuleysisbóta ef að lögum yrði. Brtt. eru fluttar af 1. minni hl. og studdar af 2. minni hl., undirritaðri, sem kaus að skila séráliti til að gera nánari grein fyrir afstöðu sinni.
    Ég vil nota tækifærið hér og vekja athygli á því að skiptar skoðanir eru um þetta mál, ekki einungis hér á þingi, heldur einnig meðal forsvarsmanna stórra stéttarfélaga. Fulltrúar ASÍ í nefnd þeirri er samdi frv. mælti ekki með að farið yrði að tilmælum sérfræðinganefndarinnar, en í umsögn BHMR um frv. er Alþingi hvatt til að breyta 3. gr. gildandi laga til samræmis við ákvæði félagsmálasáttmála Evrópu. Er hægt að taka mikið skýrar til orða?
    Það er skoðun 2. minni hl. heilbr.- og trn. Nd. að virða beri félagsmálasáttmála Evrópu í hvívetna og þetta skiptir máli, ekki aðeins í þessum umræðum hér heldur einnig fyrir stéttarfélög að öðru leyti. Benda má á að umrædd gagnrýni sérfræðinganefndarinnar varðar 5. gr. hans, en í henni eru ákvæði um að ekki megi skerða rétt einstaklings til að vera í stéttarfélagi, né heldur megi lög um stéttarfélög skerða réttindi nokkurs einstaklings.
    2. minni hl. heilbr.- og trn. telur réttinn til þátttöku í stéttarfélagi grundvallarrétt hvers manns og um hann þurfi ekki að deila en það sé æðiþversagnarkennt að vilja aðeins framfylgja þeim hluta 5. gr. er varðar rétt til að vera í stéttarfélagi en hundsa önnur réttindi sem einnig eru tryggð í greininni. Mér er það raunar öldungis óskiljanlegt ef málsvarar stéttarfélaga komast ekki að sömu niðurstöðu að vandlega íhuguðu máli, að ég tali ekki um hæstv. félmrh. og heilbr.- og trmrh.
    Það eru ótvíræðir hagsmunir fólgnir í því að eiga rétt á að mynda með sér stéttarfélög. Meginstyrkur stéttarfélaga felst í samtakamættinum. Með
sameiginlegu átaki er hægt að ná verulegum árangri eins og saga stéttarfélaga á Íslandi frá upphafi ber glöggt vitni. Ræki stéttarfélög þetta hlutverk sitt og séu ótvíræðir málsvarar félagsmanna sinna gefur auga leið að þeir munu telja hag sínum best borgið með því að beita samtakamætti sínum innan félaganna. Það var fyrir samtakamátt fólks innan stéttarfélaga að réttur manna til atvinnuleysisbóta var fyrst tryggður. Nú efast enginn lengur um þennan rétt og er hann m.a. tryggður í félagsmálasáttmála Evrópu sem við eigum aðild að eins og marghefur fram komið hér. Hér um sjálfsögð mannréttindi að ræða og aðild að stéttarfélögum á ekki að vera aðgöngumiði að þeim.
    En önnur brýn verkefni bíða stéttarfélaganna og þeim er nauðsynlegt að beita samstöðu ef unnt á að vera að bæta úr því smánarlega ástandi sem nú ríkir í samfélagi þar sem full dagvinnulaun nægja engan veginn til framfærslu í stað þess að vera að elta ólar við ákvæði af þessu tagi. Þau munu án efa tryggja hag félagsmanna sinna meira með því að líta fram á

veginn til framtíðarinnar og þeirra verkefna sem þar bíða en að reyna að gera fyrri áfanga að því eina sem laðar fólk að stéttarfélögunum. Fjárhagslega er ekkert því til fyrirstöðu að stíga þetta mikilvæga skref nú þegar og án einhverra sérstakra ráðstafana. Á Íslandi eru langflestir launamenn innan stéttarfélaga. Fjöldi þeirra sem á rétt til atvinnuleysisbóta, ef allir launamenn öðlast þann rétt, verður því litlu meiri en nú er. Atvinnuleysistryggingasjóður er að stórum hluta fjármagnaður af almannafé. Vinnuveitendur launþega utan stéttarfélaga greiða til sjóðsins eins og aðrir vinnuveitendur. Því er ekki hægt að líta svo á að launþegar innan stéttarfélaga eigi meiri rétt til greiðslna úr sjóðnum en aðrir launþegar af þessum sökum. 2. minni hl. mun því styðja brtt. 1. minni hl. heilbr.- og trn. og frv. í heild, svo breytt, sem og önnur ákvæði sem þar hafa verið lögð fram.