Matthías Bjarnason :
    Herra forseti. Ég leitaði mikið á borðinu hjá mér þó þar sé nú mikið af pappírum, en ég finn ekki að þetta þingskjal, þetta frv. sé komið á borð þingmanna eins og það var afgreitt frá Ed. og er föst venja og skylda að útbýta. Ég vil því spyrja hæstv. forseta hvernig standi á því að þingskjal komi ekki en umræða sé nú búin að standa hér í þessu máli í næstum því tvo klukkutíma.