Vegtenging um utanverðan Hvalfjörð
Föstudaginn 04. maí 1990


     Sveinn G. Hálfdánarson:
    Hæstv. forseti. Ég fagna þessu máli sem hér er til umræðu og vona að það fái farsæla meðferð hér. Það er okkur Vestlendingum vissulega ánægjuefni að þetta skuli vera komið hér fram á þessu þingi. Þetta er mikið stærra og meira mál en við kemur aðeins okkur Vestlendingum. Þetta eru stórar úrbætur í hringveginum svokallaða og ég vona að það fái afgreiðslu nú.