Þorv. Garðar Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Það má nú öllum vera ljóst að það er ekki nægilegur fjöldi þingmanna á þessum fundi. Fundurinn er ekki ályktunarfær. Ég vildi bara vekja athygli á því og eðlilegt er að þessari atkvæðagreiðslu sé frestað þar til fullnægt er þeim ákvæðum þingskapa að hér verði ekki teknar ákvarðanir nema fundurinn sé ályktunarfær.