Flm. (Eggert Haukdal):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um könnun á fjárveitingum úr Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins sem ég flyt ásamt hv. 11. þm. Reykn. Tillagan er svohljóðandi:
    ,,Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta fara fram könnun á því hvort ákvæði um Mannvirkjasjóð Atlantshafsbandalagsins eða önnur ákvæði heimili fjárveitingar til bættra samgangna, vega, stórbrúa og jarðgangagerðar sem nauðsynlegs hluta varnarkerfis landsins. Jafnframt verði kannað hvort fordæmi eru fyrir fjárveitingum í öðrum ríkjum bandalagsins til samgangna, fjarskipta og flugvallargerðar af hálfu þess.``
    Efni þessarar till. á við inn í þá umræðu sem hér hefur farið fram í kvöld og nótt um vegamálin en því miður eru nú fáir orðnir viðstaddir. Í till. er fjallað um hluti sem í sjálfu sér verða að teljast til grundvallaratriða í vörnum hvers lands. Þar er átt við greiðar og góðar samgöngur. Á það við hvort sem um er að ræða ástand á hættutímum eða í þágu almannavarna landsins. Þar er um að ræða ráðstafanir sem allar þjóðir álfunnar hafa lagt mikla áherslu á að byggja upp, ekki aðeins vegna hugsanlegs hernaðarástands heldur einnig vegna annarrar almannahættu, vegna náttúruhamfara, svo sem jarðskjálfta og eldgosa sem hætta er af hér á landi öðrum fremur.
    Í umræðunni sem átt hefur sér stað hér á landi um varnir landsins hafa þessir þættir mála legið furðu mikið í láginni af einhverjum ástæðum. Er það mjög til vansa hve við höfum vanrækt að koma hér upp öflugu almannavarnakerfi. Hugsanlegt stórslys í Gufunesi hefur þó síðustu daga leitt hugann að þessum
málum og nauðsyn þess að hér séum við miklu meira á varðbergi en verið hefur. Með öðrum þjóðum hafa almannavarnir og varnir landsins verið tengdar saman í mun meiri mæli en hér á landi. Nægir í því efni að vitna til reynslu Norðmanna og samstarfs þeirra við Atlantshafsbandalagið á þessum sviðum.
    Þó er það svo, og það er mergurinn málsins, að mikil samvinna hefur átt sér stað milli varnarliðsins og íslenskra aðila á liðnum áratugum varðandi stórmiklar verklegar framkvæmdir. Nægir þar að nefna hina umfangsmiklu starfsemi Aðalverktaka, ríkasta félags landsins, sem annast hefur yfirstjórn og framkvæmdir fyrir milljarða króna á hverju ári fyrir varnarliðið. Nýjustu dæmi um það eru höfnin í Helguvík, ratsjárstöðvar, olíugeymar, flugskýli og íbúðarbyggingar á Keflavíkurflugvelli. Leika þar framkvæmdir á 3--4 milljörðum kr. árlega. Slíkt hefur þótt eðlilegt og sjálfsagt, enda eru þær eðlilegur hlekkur í varnarstefnu landsins. Þær framkvæmdir hafa hins vegar verið í höndum fámenns verktakafélags sem einokunaraðstöðu hefur haft á þessum markaði.
    Það skýtur þess vegna mjög skökku við og sýnir málefnalega tvöfeldni, svo að ekki sé meira sagt, þegar menn leggja blessun sína yfir slíkar

framkvæmdir áratugum saman, en kenna hugmyndir um eflingu samgangna, vega, brúa og jarðgangagerðar sem gagnast almannavörnum og þjóðinni allri við hermang og annað verra. Erfitt er að sjá rökvísina í málflutningi þeirra sem þannig tala og lagst hafa á undanförnum árum gegn því að Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins gangi til samvinnu við Íslendinga um önnur brýn varnarverkefni en þau sem Aðalverktakar hafa hingað til unnið fyrir varnarliðið. Hér er vitanlega um algerlega sambærileg mál að ræða og því fásinna ein að kenna þær hugmyndir sem reifaðar eru í þessari tillögu við það að með því séu Íslendingar að hagnast óeðlilega á varnarliðinu sem hér dvelst í okkar þágu. Í slíkri gagnrýni felst ekkert annað en hræsni og yfirdrepsskapur á sama tíma og grænt ljós er gefið á byggingu nýrra ratsjárstöðva í öllum landsfjórðungum og byggingu hinnar stóru olíubirgðahafnar í Helguvík. Það ætti öllum að vera ljóst sem ofstækislaust líta á þessi mál.
    Til ítrekunar þessum orðum og gagnvart þeim rökum að dagar varnarbandalaga séu taldir eftir atburðina í Austur-Evrópu vil ég vitna í greinargerð tillögunnar, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Flestir þeir sérfræðingar, sem um alþjóðamál fjalla, eru þeirrar skoðunar að sú mikla og merkilega þróun, sem átt hefur sér stað í ríkjum Austur-Evrópu síðasta missirið, muni ekki leiða til þess að varnarbandalög álfunnar verði lögð niður. Hlutverk þeirra muni hins vegar verða annað og breytt í framtíðinni. Þannig má gera ráð fyrir því að með aukinni afvopnun stórveldanna á höfunum verði enn meiri þörf en nú er á virku eftirliti með því að slíkir alþjóðasamningar verði haldnir. Mikilvægi Norður-Atlantshafsins í þessum efnum mun ekki fara minnkandi. Eftir sem áður verður það mikilvægasta birgðaflutningaleiðin milli Ameríku og Evrópu. Hlutverk Íslands mun því að margra dómi verða enn þýðingarmeira en áður við eftirlitsstörf með umsvifum þeirra þjóða sem hér eiga í hlut. Atlantshafsbandalagið fær hér nýtt og aukið hlutverk á þessu sviði og engin ástæða er til að ætla að það hverfi af sjónarsviðinu af þessum sökum um alllanga framtíð. Aðild okkar að því mun áfram tryggja varnar- og öryggishagsmuni okkar í þeirri afvopnunarþróun sem nú er sem betur fer að hefjast.``
    Þessu næst vil ég fara nokkrum orðum um vegamálin en ástand þeirra gaf mér m.a. tilefni til flutnings þessarar tillögu. Efni þáltill. hefði þó fyrir löngu þurft að vera komið til framkvæmda. Í vegamálum blasir nú við stórfelldur niðurskurður framkvæmda frá samþykkt vegáætlunar sl. vor þannig að ekki hefur horft eins illa um árabil. Gildir þar einu þótt settar séu á blað till. um flýtingar á framkvæmdum án þess að nokkurt fjármagn standi þar á bak við. Það eru ný sannindi ef hægt er að stórflýta framkvæmdum í vegamálum á sama tíma og fé er stórskert til framkvæmda.
    Ef horft er aðeins til baka má minnast þess að 1981 sameinuðust þingmenn allra flokka á Alþingi um till. til þál. um að undirbúin skyldi langtímaáætlun í

vegagerð. Höfðu legið fyrir þingunum þar á undan tillögur í vegamálum sem náðu nú fram að ganga í einni tillögu. Í henni voru sameinuð sjónarmið stjórnar og stjórnarandstöðu um fjármögnun hennar og þannig lagður góður grunnur að máli sem þingheimur sameinaðist um. Að loknum undirbúningi og á grundvelli fyrrnefndrar tillögu var lögð fram á þinginu 1982--1983 tillaga um langtímaáætlun í vegagerð. Skyldi samkvæmt henni varið til vegamála á árinu 1983 2,2% af vergri þjóðarframleiðslu. Á árinu 1984 skyldi þetta hlutfall vera 2,3%, en árin 1985--1994 2,4%. Fjármagninu var skipt á þrjú tímabil á árunum 1983--1994. Skipting útgjalda var og tímasett með sama hætti og skipt á verkefni. Áætlunin skyldi endurskoðuð fjórða hvert ár og þá bætt við nýju fjögurra ára tímabili í stað þess er lauk. Í tillögum sjálfstæðismanna frá 1978, sem tekið var tillit til við samning langtímaáætlunar, er sett fram það markmið að leggja bundið slitlag á hringveginn, tengingu í alla fjölbýlisstaði, svo og fjölförnustu dreifbýlisvegi á næstu 10--15 árum. Vegna óstöðugleika í stjórnarfari um þetta leyti var langtímaáætlun aldrei afgreidd. Eigi að síður hefur verið höfð hliðsjón af henni eins og hún hefði verið samþykkt.
    Þrátt fyrir þá samstöðu sem náðist um langtímaáætlun hefur brugðist að standa við fjármögnunina. Þannig voru fjárveitingar til vegamála 1982 1,76% af vergri þjóðarframleiðslu í stað 2,2% en er nú komin niður undir 1% í stað 2,4%. Þrátt fyrir takmarkað fjármnagn til vega tókst þó að leggja á varanlegt slitlag þessi árin sem hér segir: Árið 1986 279 km, 1987 305 km, 1988 256 km, 1989 152 km og í ár, 1990, er áætlað aðeins um 100 km. Er þetta slæm þróun síðustu tvö árin.
    Sem dæmi um hvernig að málum þessum hefur verið staðið í tíð núv. stjórnar er að á sl. ári voru 700 millj. kr. sem lagðar voru á umferðina teknar beint í ríkissjóðshítina. Nú blasir við, ef vegáætlun verður afgreidd eins og horfir, að við bætist 1 milljarður í niðurskurð. Eftir atvikum mátti þó una við framkvæmdir árið 1990 ef það hefði staðið sem samþykkt var í maí fyrir ári síðan. En því er ekki að heilsa. Langtímaáætlun hefur því aldrei staðið eins illa.
    Ég vil þessu næst, með leyfi forseta, vitna örfáum orðum í erindi er einn af virtustu embættismönnum landsins, Helgi Hallgrímsson aðstoðarvegamálastjóri, flutti á mannvirkjaþingi árið 1990. Eftir að hafa skýrt frá áætlun um fjármögnun til framkvæmda 1990 segir hann:
    ,,Á föstu verðlagi er þetta heldur minna en var á síðasta ári. Á hinn bóginn er þetta miklu minna en vera átti á þessu ári 1990 samkvæmt vegáætlun sem samþykkt var á Alþingi sl. vor. Raunminnkun er um 1 milljarður kr. og veldur hún miklum höfuðverk hjá alþingismönnum um þessar mundir, en þeir þurfa að beita hnífnum óspart. Enn fremur veldur þetta miklum vanda hjá þeim sem undirbúa, skipuleggja og framkvæma eiga verkin.``
    Og enn fremur segir Helgi Hallgrímsson: ,,Þrátt fyrir lögboðna tekjustofna gengur ekki alltaf vel að

skapa festu í fjármálum. Stundum ákveður Alþingi að nota peningana í annað, þrátt fyrir lögin. Stundum skirrast menn við að hækka stofnana í takt við verðlagsþróun. Þetta skeður þrátt fyrir að vegáætlun er æ ofan í æ samþykkt með þeirri stefnumörkun að nýta skuli tekjustofna til fulls og ráðast í nýja, fjárfreka verkefnaflokka. Ein slík stefnumörkun var samþykkt við afgreiðslu vegáætlunar á Alþingi sl. vor. Þar var ákveðið að ráðast af auknum krafti í ýmis stórverkefni, svo sem jarðgöng, stórbýr og vegagerð á höfuðborgarsvæðinu, miðað við að fjármagn ykist að því marki að almenn vegagerð og bundin slitlög héldu sínum hlut að mestu. Var það reyndar grundvallaratriði vegna þess hve mikið er þar ógert. Þessi aukning skilar sér ekki á þessu ári eins og fram kom hér á undan. Væru tekjustofnar fullnýttir gæfu þeir 500--700 millj. kr. í viðbót við það fjármagn sem nú er til umráða.``
    Í lok máls síns segir Helgi Hallgrímsson: ,,Tilgangur þessa mannvirkjaþings er að fá yfirlit um líklegar framkvæmdir á árinu 1990. Mig langar þó í lokin að skyggnast aðeins lengra. Í vegagerðinni höfum við reynt að meta þörf fyrir fjárfestingu í vegamannvirkjum næstu 20 árin. Og áætlaður kostnaður við uppbyggingu vegakerfisins lítur þannig út: Höfuðborgarsvæðið 15 milljarðar. Jarðgöng 14 milljarðar. Stórbrýr og fjarðaþveranir 3 milljarðar. Stofnbrautir, önnur verkefni, 21 milljarður. Þjóðbrautir 16 milljarðar. Samtals 69 milljarðar. Sum þessara verkefna eru mjög brýn og öll æskileg. Sé miðað við að
ljúka þessu á 20 ára tímabili þarf 3 1 / 2 milljarð á ári.`` Innskot mitt: Hvað verða margir eftir á landsbyggðinni með sömu þróun ef þetta á að vera óbreytt allt þetta árabil?
    Helgi Hallgrímsson heldur áfram: ,,Hafa ber einnig í huga að útgjöld vegna þjónustu á vegakerfinu, reksturs þess og viðhalds mun fara vaxandi á næstu árum. Ljóst er því að nýta verður núverandi tekjustofna til fulls. Jafnframt verður að huga að nýjum tekjuöflunarleiðum. Má þar nefna veggjald, eins og verið hefur til umræðu í Hvalfirði, eða svæðisbundið bensíngjald, eins og rætt hefur verið í tengslum við jarðgöng á Vestfjörðum. Í hugum okkar vegagerðarmanna er ekki vafi á því að kröfur til vegakerfisins og þjónustunnar þar munu fara vaxandi á næstu árum. Til að standast þær kröfur þarf verulega aukið fjármagn.``
    Eins og fram kemur í erindi Helga Hallgrímssonar kalla verkefnin á fjármagn í öllum kjördæmum landsins. Nefna má t.d. eftirfarandi dæmi í Suðurlandskjördæmi:
    1. Ný Markarfljótsbrú, sem fyrir löngu hefði þurft að vera komin.
    2. Ný brú á Kúðafljót, sem auk þess að tengja byggðirnar í Austur-Skaftafellssýslu er mikil samgöngubót fyrir Austurland.
    3. Jarðgöng í gegnum Reynisfjall.
    Í öðrum kjördæmum má benda á að á höfuðborgarsvæðinu kalla miklar stórframkvæmdir á

stóraukið fjármagn. Ný Breiðafjarðarferja hefur nýlega verið tekin í notkun en stórframkvæmdir vantar beggja megin í tveimur kjördæmum. Má þar nefna jarðgöng á Vestfjörðum til að hafa sem best not af ferjunni. Þar er nú gerð tilraun til að flýta framkvæmdum, en fjármögnun virðist vera á brauðfótum og er vont að gefa mönnum vonir ef ekki er staðið við þær.
    Fyrir ári síðan var úthlutað í vegaverkefni í öllum byggðum landsins einum milljarði meira en gert er með þeirri breytingu á vegáætlun sem nú er verið að afgreiða. Sporin hræða. Og þessi niðurskurður er gerður með einu pennastriki án þess að stjórnarliðar blikni. Að þessu sögðu er ekki ástæða til nú þegar fyrir liggur að stjórnvöld hafa hálfgefist upp við að leysa fjárhagsvanda samgangna á landi að horfa til fleiri tekjustofna og þá að minnast þess að með góðum samgönguleiðum um land allt eru raunverulegar varnir og almannavarnir landsins tryggðar.
    Virðulegi forseti. Ég vil svo leggja til að að lokinni þessari umræðu verði þessu máli vísað til fjvn.