Þinglausnir
Laugardaginn 05. maí 1990


     Egill Jónsson:
    Herra forseti. Fyrir nokkrum mínútum var gert smáhlé og þá haldnir þingflokksfundir. Við í Sjálfstfl. höfum ekki heyrt hver varð niðurstaða úr þeim þingflokksfundum. Okkar formaður sat á fundi þegar hér var hringt til funda. Ég vil óska eftir því að skýrt verði frá því með hvaða hætti eigi að ljúka þingstörfum og að hér hefjist ekki afgreiðsla mála fyrr en það liggur fyrir.