Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. félmn. (Margrét Frímannsdóttir):
    Virðulegi forseti. Félmn. Ed. kom saman og fjallaði aðeins um þær breytingar sem gerðar voru í Nd. á frv. til laga um Húsnæðisstofnun ríkisins og leggur til að þær verði samþykktar héðan óbreyttar. Hv. þm. Salome Þorkelsdóttir og Guðmundur H. Garðarsson voru fjarverandi.