Stjórn fiskveiða
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. minni hl. sjútvn. (Hreggviður Jónsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1285 frá minni hl. sjútvn. Lög um stjórn fiskveiða eru án vafa mikilvægasta mál þessa þings. Þess vegna hefði umfjöllun um það á Alþingi Íslendinga þurft að vera ítarleg. Lagarétting um svo viðamikið og flókið mál hefði þurft vandaða efnismeðferð. Staðreyndirnar eru hins vegar þær að stjórnarliðar hafa beitt lögvillu til að koma málinu fram. Það var í gær um kl. hálffimm að frv. var vísað formlega til nefndarinnar. Þá var haldinn einn nefndarfundur sem stóð í nálægt 45 mínútur. Annar fundur nefndarinnar stóð í klukkustund og á lokafundi nefndarinnar, rétt fyrir miðnætti í gær, var okkur stjórnarandstæðingum tilkynnt að meiri hl. mundi taka málið út úr nefnd án frekari umfjöllunar.
    Þetta er sú efnismeðferð sem mikilvægasta mál þjóðarinnar fékk í sjútvn. Nd. Tíminn, sem alþingismönnum er ætlaður til að brjóta slíkt stórmál til mergjar, er svo knappur að slíkt er ekki samboðið virðingu Alþingis og minnir frekar á afgreiðslu í einræðisríki.
    Minni hl. sjútvn. Nd. mótmælir harðlega þessum vinnubrögðum og telur þau gróft brot á þingræðisvenjum og grundvallarreglum í lýðfrjálsu landi.
    Þá er það og staðreynd, hvað sem líður stjórn fiskveiða, að jafnframt hefði þurft að taka á vanda fiskvinnslunnar. Sú staðreynd að síaukinn útflutningur á sér stað á óunnum fiski hefur leitt til þess að atvinnugreinin á í erfiðleikum um gjörvallt land. Hefur atvinna verkafólks minnkað og erfiðleikar í sjávarþorpum aukist þar sem viðkvæmt og einhæft atvinnulíf er undirstaða tilverunnar.
    Við undirritaðir nefndarmenn Sjálfstfl. teljum því ekki ástæðu til að rekja í þessu nál. efnisatriði eða þær brtt. sem voru gerðar á frv. í Ed. sem eru þó sumar til bóta.
    Minni hl. nefndarinnar leggur því til að sjútvn. Alþingis verði kallaðar saman í sumar til að vinna áfram í málinu og að reglulegt Alþingi verði kvatt til starfa 3. sept. 1990 til að fjalla um málið.
    Undir þetta skrifa auk mín Matthías Bjarnason og Kristinn Pétursson.