Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. minni hl. sjútvn. (Hreggviður Jónsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. minni hl. sjútvn. á þskj. 1282 um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins.
    Frv. þetta er svo nátengt frv. um stjórn fiskveiða að það verður hvorki rætt né afgreitt nema samhliða því. Vísast til nál. 4. minni hl. um stjórn fiskveiða um efnislega greinargerð fyrir afstöðu hans.
    Minni hl. leggur til að frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Á þskj. 1284 er svohljóðandi frávísunartillaga um þetta efni:
    ,,Deildin samþykkir að fela sjútvrh. að kalla saman í sumar þá alþingismenn sem sæti eiga í sjávarútvegsnefndum Alþingis til þess að fjalla um frv. það sem hér liggur fyrir og vísar dagskrármálinu til ríkisstjórnarinnar.``