Stjórn fiskveiða
Laugardaginn 05. maí 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Forseta er nokkur ami að því, hann verður að segja það, að láta þessa atkvæðagreiðslu fara fram á meðan nefndarfundur stendur í hv. iðnn. Hann getur eiginlega ekki réttlætt það fyrir sjálfum sér og vill nú gera smáhlé á þessum fundi. (Gripið fram í.) Ég hef ákveðið að gera hlé á þessum fundi og athuga hvernig stendur á með hv. iðnn. --- [Fundarhlé.]