Stjórn fiskveiða
Laugardaginn 05. maí 1990


     Ólafur G. Einarsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Herra forseti. Þingflokkur sjálfstæðismanna tók þá einu ákvörðun í þessu máli að vera andvígur því. Hver af hv. þm. trúir því að hv. þm. Matthías Bjarnason hafi haft einhverja aðra afstöðu? Ég mótmæli orðum hv. þm. Sighvats Björgvinssonar þegar hann var að gera grein fyrir atkvæði sínu hér áðan.