Sveitarstjórnarlög
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1304 um frv. til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum fyrir hönd félmn.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt eins og það liggur fyrir eftir afgreiðslu Ed.
    Undir þetta álit skrifa allir nefndarmenn.