Starfslok neðri deildar
Laugardaginn 05. maí 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Nú er komið að starfslokum í hv. þingdeild. Þetta er síðasti fundur deildarinnar. Af því tilefni leyfi ég mér að þakka hv. þingdeildarmönnum ágætt samstarf og ánægjulegar samvistir á þessu þingi. Ég þakka sérstaklega varaforsetum mikilvæga aðstoð við mig, svo og skrifurum deildarinnar. Skrifstofustjóra og starfsliði þingsins öllu þakka ég störf og samstarf við mig.
    Ég óska þingdeildarmönnum og fjölskyldum þeirra allra heilla og velfarnaðar á komandi sumri, sem raunar er komið, og ég óska þeim einnig góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.