Varamenn taka þingsæti
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
     Borist hefur eftirfarandi bréf:
    ,,Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Ellert Eiríksson sveitarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Ellert Eiríksson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.