Jöfnun orkukostnaðar
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Skúli Alexandersson :
     Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. 2. þm. Austurl. fyrir að bera fram þessa fsp. og taka undir flest það sem hv. þm. hér, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, hafa sagt um þetta mál og nauðsyn þess að gengið verði frá jöfnun orkukostnaðar á þessu þingi. Sérstaklega kem ég hér upp til að taka undir orð hv. 1. þm. Vesturl. um það að ekki verði gengið frá samningum um nýjar orkuframkvæmdir eða ný stóriðjuver öðruvísi en að fullu verði gengið frá þessu máli.