Bygging og rekstur álvers
Fimmtudaginn 18. október 1990


     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Nú ber þannig við að iðnrh. er ekki í salnum. Ég verð eiginlega að líta þannig á að þessi umræða sé marklaus ef sá ráðherra sem fer með þennan málaflokk er ekki við umræðuna. Sömuleiðis er málshefjandi ekki mættur í salinn þannig að ég vil nú fara fram á það að iðnrh. verði kallaður til.