Ársreikningar og endurskoðun lífeyrissjóða
Miðvikudaginn 24. október 1990


     Salome Þorkelsdóttir :
    Hæstv. forseti. Þrátt fyrir það að hæstv. fjmrh. hafi ætlað að reyna að draga úr þessum fullyrðingum sínum þá standa þær engu að síður. Það eru sveitarfélögin sem eru fær um að semja fyrir sinn hatt en ekki hæstv. fjmrh. ( Fjmrh.: Reykjavíkurborg hefur bara aldrei boðið upp á samninga um þetta.)