Ábyrgð gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum
Miðvikudaginn 31. október 1990


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Það frv. sem hér er til umræðu fjallar um ábyrgð vegna norrænna fjárfestingarlána. Með lögum nr. 77/1982 og 69/1986, um ábyrgð vegna norrænna fjárfestingarlána til verkefna, var ríkisstjórninni fyrir hönd ríkissjóðs heimilað að ábyrgjast hluta Íslands gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum vegna fjárfestingarlána og fjárfestingarábyrgða til verkefna utan Norðurlanda. Hafði ráðherranefnd Norðurlanda áður breytt samþykktum fyrir bankann með tilliti til þessa. Á grundvelli þessara tvennra laga gerði Ísland síðan ábyrgðarsamninga við bankann.
    Vegna aukinna umsvifa hefur ráðherranefndin samþykkt að hækka hámarksheimild bankans vegna fjárfestingarlána til verkefna utan Norðurlanda og ábyrgða á slíkum lánum úr 700 millj. sérstakra dráttarréttinda (SDR) í 1000 millj. SDR. Af þessum 1000 millj. ábyrgjast Norðurlöndin 900 millj., mest 90% af hugsanlegu lánsfjártapi. Við þetta eykst ábyrgð Íslands vegna ofangreindrar verkefnastarfsemi enn einu sinni, nú úr 5 milljörðum 350 millj. í 8 milljarða 50 millj. SDR.
    Með frv. þessu er með sama hætti og áður leitað eftir lagaheimild fyrir aukinni ábyrgð. Á grundvelli slíkrar heimildar yrði síðan gerður nýr ábyrgðarsamningur milli Íslands og bankans. Sá samningur mundi leysa eldri samning milli aðilanna af hólmi.
    Sem fskj. með frv. eru birtar breytingar á samþykktum fyrir bankann sem tengjast ofangreindri ábyrgðaraukningu, svo og tvær aðrar breytingar. Önnur snertir nafn bankans á ensku en hin varamenn.
    Ég tel ekki ástæðu til þess að fjalla frekar um efnisatriði frv. en mælist hins vegar til þess að að lokinni 1. umr. verði því vísað til 2. umr. og hv. fjh. - og viðskn.