Kennaraháskóli Íslands
Þriðjudaginn 13. nóvember 1990


     Frsm. menntmn. (Jón Helgason) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. menntmn. um frv. til laga um breytingu á lögum um Kennaraháskóla Íslands.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Eins og kom fram við 1. umr. málsins felur þetta frv. aðeins í sér að sníða af nýsettum lögum agnúa sem í ljós komu þegar þau skyldi framkvæma og þá fyrst og fremst rektorskjör. Það er fært í svipað horf og nú gildir um rektorskjör við Háskóla Íslands.