Kennaraháskóli Íslands
Þriðjudaginn 20. nóvember 1990


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. á þskj. 75 sem er 73. mál Ed. og hefur fengið þar meðferð á þessu þingi. Í frv. er gert ráð fyrir því að sníða af lögunum um Kennaraháskóla Íslands framkvæmdarlega agnúa sem hafa komið í ljós að því er varðar rektorskjör. Á þessi ákvæði reynir í fyrsta skipti við kosningu rektors sem fram á að fara í janúar 1991. Um rektorskjör er fjallað í 3. gr. laganna. Fyrstu þrjár mgr. kveða m.a. á um kjörtímabil rektors, kjörgengi, hverjir eigi atkvæðisrétt og heimild til endurkjörs.
    Í 4. mgr. er síðan áskilið að til þess að ná kjöri í fyrstu umferð þurfi atkvæði meiri hluta atkvæðisbærra manna auk ákvæðis um þátttöku a.m.k. tveggja þriðju sama hóps. Þetta er sama skilyrði og gilti samkvæmt reglugerð skólans frá 1974 en þess er að gæta að samkvæmt þeim lögum sem sú reglugerð studdist við, nr. 38/1971, var rektor kjörinn af mun þrengri hópi en samkvæmt nýju lögunum. Áður var rektor kosinn af skólastjórn, þar sem auk rektors, fastra kennara Kennaraháskólans og skólastjóra Æfinga- og tilraunaskólans sátu einungis fáeinir fulltrúar nemenda. Nú eiga allir skrásettir nemendur atkvæðisrétt með tilteknu vægi atkvæða.
    Það virðist því mjög ströng krafa og líkleg til að gera rektorskjörið óþarflega flókið að áskilja atkvæði meiri hluta atkvæðisbærra manna til að ná kjöri. Eðlilegra sýnist að kveða á um meiri hluta atkvæða með vísun í 2. mgr. þar sem kveðið er á um vægi atkvæða. Þetta er sama skipan og um er að ræða samkvæmt þeim lögum sem gilda um Háskóla Íslands.
    Ég vænti þess að hv. Nd. taki þessu frv. vel og henni auðnist að afgreiða málið í tæka tíð og legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.