Rannsókn kjörbréfs
Mánudaginn 26. nóvember 1990


     Frsm. kjörbréfanefndar (Ólafur G. Einarsson) :
    Hæstv. forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Sigrúnar Jónsdóttur sem hlaut kosningu sem 2. varaþm. Samtaka um kvennalista í Reykjaneskjördæmi við síðustu kosningar, en það er óskað eftir að hún taki sæti á þingi í fjarveru Önnu Ólafsdóttur Björnsson.
    Kjörbréfanefnd hefur engar athugasemdir að gera við þetta kjörbréf og leggur til að það verði samþykkt.