Sérprentun á húsnæðislögunum
Mánudaginn 26. nóvember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Þar sem hæstv. forsrh. er ekki staddur hér vildi nú forseti fara þess á leit að umræður hæfust ekki hér um væntanlegan kosningadag. Forseta hefur ekki borist nein nákvæm dagsetning á væntanlegum kosningadegi og getur því ekki haft mikið um það að segja á þessu stigi máls. En forseti mun að sjálfsögðu gefa hv. þm. færi á að eiga orðastað við hæstv. forsrh. um það efni sem og önnur.