Fjáraukalög 1990
Fimmtudaginn 29. nóvember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti hefur áður tekið fram að athugað mun nú verða hvort hægt sé að leyfa utandagskrárumræðu þegar umræðu um fjáraukalög lýkur og atkvæðagreiðsla hefur farið fram. Ég mælist því til þess að menn leggi af umræðu um þetta mál sem allra fyrst.