Fjáraukalög 1990
Fimmtudaginn 29. nóvember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill taka fram að sú umræða sem nú hefur farið hér fram undir lokin er umræða um þingsköp. Það sem forseti gerði athugasemd við í morgun var að langt út fyrir hana var farið og var hæstv. öðrum varaforseta þingsins ekki sýndur sá sómi sem við hæfi er.