Sementsverksmiðja ríkisins
Þriðjudaginn 04. desember 1990


     Þorv. Garðar Kristjánsson :
     Herra forseti. Ég kem hér upp einungis til þess að segja, til þess að vekja ekki misskilning að ég er algerlega sammála hæstv. iðnrh. um það að þetta frv. gefur ekki tilefni til umræðna um skattamál almennt. En ég bendi á að þetta frv. gefur tilefni til þess að ræða bein ákvæði sem eru í frv. og varða skattamál og það hef ég tekið til umræðu hér.