Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
Þriðjudaginn 04. desember 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Hér er um að ræða heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á og viðauka við stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem samþykkt var af yfirstjórn sjóðsins hinn 28. júní 1990. Á þskj. 209 liggur fyrir álit fjh. - og viðskn. sem hefur fjallað um þetta frv. og mælir með samþykkt þess.
    Jón Sæmundur Sigurjónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en aðrir nefndarmenn standa að þessu nál.