Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins árétta það að gefnu tilefni að svar mitt var eins skýrt og það getur verið. Þetta safn er nú lokað samkvæmt fyrirmælum þýskra stjórnvalda og þess vegna ekkert um það að ræða að við höfum aðgang að því. Verði þeirri ákvörðun þýskra stjórnvalda breytt, þá munum við fylgjast með málinu og taka afstöðu til þess eins og tilefni gefst þá til.