Öflun gagna um veiðiheimildir smábáta
Mánudaginn 10. desember 1990


     Forseti (Jón Helgason) :
    Ég hef heyrt beiðni hv. þm. um að taka þetta til athugunar. Viðhorf forseta almennt komu reyndar fram í bréfi sem hæstv. forseti Sþ. skýrði frá á fundi í Sþ. fyrir skömmu. En að sjálfsögðu hef ég heyrt þessa beiðni og mun taka hana til athugunar að öðru leyti ef eitthvað er nýtt í málinu.