Sektarmörk nokkurra laga o.fl.
Þriðjudaginn 11. desember 1990


     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson) :
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um breytingu á sektarmörkum nokkurra laga o.fl.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og kallaði höfund þess, dr. Ármann Snævarr, fyrrv. hæstaréttardómara, á sinn fund. Auk þess bárust umsagnir dómsmrn. og Lögmannafélags Íslands.
    Nefndin leggur til að gerðar verði þrjár breytingar á frv. Lagt er til að 2. og 41. gr. frv. falli brott þar sem þau lagaboð, sem þar er verið að breyta, voru felld úr gildi á síðasta þingi. Þá er einnig lagt til að 31. gr. frv. falli brott en í henni er lögð til breyting á sektarmörkum söluskattslaga. Þau lög voru felld úr gildi með lögum um virðisaukaskatt, en refsiákvæði laganna höfðu þá tímabundið gildi. Nú hefur fækkað mjög þeim tilvikum sem refsiákvæði söluskattslaga gætu náð yfir. Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra munu allar undanþáguheimildir til þess að skila söluskatti falla niður um áramót. Sýnist því ekki ástæða til að breyta þessum ákvæðum söluskattslaga því að nýju sektarmörkin mundu einungis gilda um söluskattssvik frá gildistöku laganna og fram að næstu áramótum.
    Nefndin leggur því til að frv. verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á þskj. 239 og fjalla einfaldlega um það að 2., 31. og 41. gr. falli brott.
    Undir nál. rita Jón Kristjánsson, Ólafur G. Einarsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Friðjón Þórðarson, Guðni Ágústsson, Ingi Björn Albertsson og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.