Ábyrgðadeild fiskeldislána
Þriðjudaginn 11. desember 1990


     Frsm. fjh. - og viðskn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson) :
    Virðulegi forseti. Ég flyt hér nál. frá fjh. - og viðskn. um frv. til l. um breytingu á lögum nr. 17 frá 3. apríl 1990, um ábyrgðadeild fiskeldislána. Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt.
    Matthías Bjarnason var fjarverandi afgreiðslu málsins.
    Undir þetta nál. rita Páll Pétursson, Friðrik Sophusson, Guðmundur G. Þórarinsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Ragnar Arnalds og Jón Sæmundur Sigurjónsson.