Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Þriðjudaginn 11. desember 1990


     Frsm. fjh. - og viðskn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson) :
    Virðulegi forseti. Ég flyt nál. frá fjh. - og viðskn. um frv. til laga um ráðstafanir vegna kjarasamninga.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund Ástu Magnúsdóttur frá Húseigendafélagi Reykjavíkur, Þórleif Jónsson og Guðlaug Stefánsson frá Landssambandi iðnaðarmanna og Snorra Olsen og Guðrúnu Ástu Sigurðardóttur frá fjmrn.
    Nefndin mælir með samþykkt frv.
    Matthías Bjarnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Undir nál. rita Páll Pétursson, Friðrik Sophusson, Guðmundur G. Þórarinsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Ragnar Arnalds og Jón Sæmundur Sigurjónsson.