Fundarsókn þingmanna
Þriðjudaginn 11. desember 1990


     Halldór Blöndal :
    Ég held að það sé óhjákvæmilegt að vekja athygli á því, herra forseti, að því aðeins getur þingið gengið með eðlilegum hætti að fulltrúar stjórnarandstöðunnar séu hér mættir. Í þessum sal og hliðarherbergjum eru allir þingmenn stjórnarandstöðunnar sem sæti eiga í þessari deild en hið sama verður sannarlega ekki sagt um stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar.