Afnám vísitölutengingar fjárskuldbindinga
Fimmtudaginn 13. desember 1990


     Stefán Valgeirsson :
    Virðulegi forseti. Það er dálítið einkennileg fyrirbára að vitna í það að það séu lög síðan 1979 sem standi í vegi fyrir þessu. Annað eins hefur nú verið gert hér á hv. Alþingi og að koma með brtt. um löggjöf og dálítið skrýtið að bera það fyrir að framkvæma þau atriði sem mest var lögð áhersla á í stjórnarsáttmálanum. Ég vil taka undir með hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni að það þarf að þessu leyti, eins og í mörgum öðrum tilvikum, að reyna að standa við stjórnarsáttmála.