Fjárlög 1991
Föstudaginn 14. desember 1990


     Árni Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Það er ljóst að fjárframlög til Verkmenntaskólans á Akureyri eru of lítil eins og kom fram hjá hv. þm. Málmfríði Sigurðardóttur. Á undanförnum árum hefur Verkmenntaskólinn þó fengið býsna drjúgar viðbætur við afgreiðslu fjárlaga. Þingmenn kjördæmisins hafa beitt sér fyrir því að uppbygging skólans geti átt sér stað með eðlilegum hætti og nauðsynlegum. Ég vænti þess fastlega að á milli 2. og 3. umr. um fjárlög náist fram einhverjar breytingar á þessum lið. Þangað til segi ég já.