Sektarmörk nokkurra laga o.fl.
Föstudaginn 14. desember 1990


     Frsm. allshn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 304 um frv. til laga um breytingu á sektarmörkum nokkurra laga.
    Þetta frv. hefur verið til meðferðar í hv. Nd. Þar voru gerðar nokkrar breytingar á frv. Allshn. Ed. gerir ekki athugasemdir við frv. og mælist til þess að það verði samþykkt eins og það kemur frá Nd.