Frsm. utanrmn. (Jóhann Einvarðsson) :
    Hæstv. forseti. Utanrmn. hefur fjallað um þessa till. og sent frá sér svohljóðandi nál.:
    ,,Nefndin hefur fjallað um till. og leggur til að hún verði samþykkt.``
    Undir þetta skrifa allir meðlimir utanrmn. og ég vil geta þess að fyrir liggja meðmæli frá Sambandi ísl. sveitarfélaga þar sem mælt er eindregið með því að sáttmálinn verði fullgiltur af Íslands hálfu.