Veiðiheimildir smábáta
Mánudaginn 17. desember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill fara þess á leit við hv. þm. að þeir verði samvinnuþýðir og reyni að stytta mál sitt sem unnt er þar sem við höfum reynt að stefna að því að komast hver til síns heima nk. föstudag, en það er ljóst að ef þingstörf tefjast mjög frá áður boðaðri dagskrá verður þar erfitt um vik. Ég bið hv. þm. að sýna tillitssemi svo að þessi umræða megi fram ganga og menn reyni að vera gagnorðir.