Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 18. desember 1990


     Frsm. félmn. (Jóhann Einvarðsson) :
    Hæstv. forseti. Ég vil láta það koma fram hér að þeirri beiðni sem kom fram í gær um að þingmenn gætu fengið afrit af bréfaviðskiptum milli félmrn., fjmrn., ríkislögmanns og Húsnæðisstofnunar varðandi stimpilgjöld af þessum framkvæmdalánum hefur verið sinnt. Þau bréfaviðskipti hafa verið útveguð og sett í hólf nefndarmanna félmn. og fjh.- og viðskn. að beiðni hv. 2. þm. Norðurl. e. í gær.