Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 18. desember 1990


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Mér þætti þægilegt ef starfsmenn þingsins gætu útvegað mér frv. Ég bið um það. Og mjög nauðsynlegt líka er að fá hingað inn hæstv. fjmrh. og hæstv. félmrh. (Forseti: Hæstv. félmrh. er kominn hér í deildina en hæstv. fjmrh. er bundinn í umræðu í Nd. Ég vil spyrja hv. þm. hvort þurfi að fresta þessu máli.) Já, ég óska eftir að hæstv. fjmrh. sé við þegar þetta mál er rætt.