Stjfrv. um tryggingagjald
Þriðjudaginn 18. desember 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Þessi þingskapaumræða hefur nú staðið í nærfellt hálfa klukkustund og forseti metur það svo að sú niðurstaða í þingskapaumræðunni sem menn hafa leitað eftir sé að verulegu leyti komin fram. Forseti vill jafnframt hvetja til þess að aðilar málsins ræði það utan veggja þessa virðulega salar.