Lánsfjárlög 1991
Miðvikudaginn 19. desember 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Hæstv. fjmrh. er að vísu ekki þingmaður og má vera að hann skilji af þeim sökum ekki þýðingu þingsins en ég held að það sé nauðsynlegt að hið háa embætti geri honum grein fyrir því að enginn annar fundur getur verið þýðingarmeiri í þessu húsi en fundur Ed. þar sem honum ber að mæta embætti sínu samkvæmt.