Lánsfjárlög 1991
Miðvikudaginn 19. desember 1990


     Guðrún J. Halldórsdóttir (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Ég tók eftir því að meðan ég flutti mál mitt var enginn þingmaður hér inni á köflum. Þeim hefur ekki fundist mál mitt þess virði að hlusta og það er kannski heldur engin furða þó að hæstv. fjmrh. álíti að svo sé líka. Ef þingmenn sjálfir virða ekki þau þingsköp sem eru hér og það sem þeir eiga að vera að gera, þá er kannski ekki von á því að menn sem eru bara varaþingmenn virði þau.