Lánsfjárlög 1991
Miðvikudaginn 19. desember 1990


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Mér varð það á að halda að það hefði verið af dyggð sem meiri hl. hafði hugsað sér að fella niður skerðinguna á sóknargjöldunum, en sé að svo er ekki. Þetta er einfaldlega verslun og áreiðanlega þannig reiknað að kirkjan tapar þegar allt kemur til alls. Ég segi nei.