Samskiptamiðstöð heyrnarlausra
Miðvikudaginn 19. desember 1990


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
    Herra forseti. Ég vil þakka hv. menntmn. fyrir skjóta og einhuga afgreiðslu á þessu máli sem lætur nú ekki mikið yfir sér en er samt mjög mikilvægt fyrir þann hóp sem hér um ræðir, heyrnarlausa og heyrnarskerta í landinu. Ég vil jafnframt taka það fram að ég tel að þær brtt. sem nefndin gerir séu til bóta og ég tel að það sé skynsamlegt með hliðsjón af þeirri öru þróun sem þessi málaflokkur er í að gera ráð fyrir því að þessi lög verði endurskoðuð eftir tiltekinn gildistíma eins og nefndin leggur til. Ég tel að það sé einnig mjög mikilvægt, herra forseti, að nefndin hefur náð fullri samstöðu um þetta mál.