Endurreisnar- og þróunarbanki Evrópu
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 445 um frv. til laga um hlut Íslands í stofnfé Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. Nál. er frá fjh.- og viðskn. og er svohljóðandi:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt.``
    Undir þetta rita Guðmundur Ágústsson, Jóhann Einvarðsson, Eyjólfur Konráð Jónsson, Skúli Alexandersson og Eiður Guðnason. Guðrún J. Halldórsdóttir og Halldór Blöndal voru fjarstödd afgreiðslu málsins.