Virðisaukaskattur
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Jón Sæmundur Sigurjónsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins segja frá gangi þessa máls. Það er rétt að ég hef gefið samþykki mitt til þess að draga þessa tillögu til baka. Ég minntist á það við það tækifæri að ég hefði auðvitað ekki tök á því að vita hvað samflutningsmenn mínir að þessari tillögu mundu gera. Mér skildist af þeim af viðtölum við nokkra þeirra að þeir hefðu ekki hug á því að draga hana til baka þannig að ekki var ljóst hvað þeir mundu gera. Nú hefur það komið í ljós og það verður þá svo að vera.