Samskiptamiðstöð heyrnarlausra
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Frsm. menntmn. (Ragnar Arnalds) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hérna fyrir hönd menntmn. sem ritað hefur nál. um frv. til laga um samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Nefndin tók þetta mál til ítarlegrar umræðu í dag og fékk til sín til viðræðna marga sem málið varðar eins og fram kemur í nál. Nefndin mælir eindregið og einróma með samþykkt frv.