Jöfnunargjald
Föstudaginn 21. desember 1990


     Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson) :
    Herra forseti. Minni hl. skilar svofelldu nál.:
    ,,Minni hluti nefndarinnar tekur ekki þátt í afgreiðslu þessa frv. og vísar um það til nál. minni hl. fjh.- og viðskn. Nd. á þskj. 428.``
    Þetta nál. minni hl. í Nd. er mjög ítarlegt og skýrir afstöðu Sjálfstfl. í þessu máli. Það er ekki ástæða til þess á síðasta degi þingsins fyrir jólaleyfi að orðlengja um málið þar sem menn geta lesið sér til um okkar álit í nál. Nd. Það er auðvitað önnur hlið á þessu máli en að það sé beint um lækkanir að ræða og ég skal ekkert fara út í það. Það skýrir sig af nál. sem menn hafa aðgang að og ég hef þegar getið um.
    Við munum sem sagt láta málið afskiptalaust.